I seeby
totiComment: *Critique Club Comment*
Magnað, ég hef ekki fengið random mynd í þessum CC klúbb í marga mánuði og þegar ég geri það dett ég niður á þína mynd.
Myndbygging
Fín bygging í myndinni, flott að fylla rammann. Eina sem fer í taugarnar á mér er að það rétt sést í nebbaling hægra megin, hefði e.t.v. mátt croppa nær glasinu eða vel inn í það.
Lýsing
Fín lýsing hjá þér, Bowens gaurinn að skila sínu. Fer ekki í taugarnar á mér að myndist "yfirlýst" svæði á glasinu. Húðin kemur vel út og aðalatriðið, augað, er mjög flott.
Tækni (e. camera work)
Mjög fín, kann vel við DOF í myndinni, hárið hæfilega blurrað eins og glasið og augað súper skarpt.
Vinnsla
Góð PS vinna. Skerping upp á tíu og blurrið í hárinu kemur eðlilega út. Flottir litir, mjög eðlilegt allt saman.
Titill og upplýsingar
Titillinn er einfaldur og lýsandi, rænir ekki athygli frá myndinni. Upplýsingarnar sem þú gefur upp innihalda allt þetta helsta, nema hvaða linsu þú notar.
Niðurstaða (mitt álit)
Tæknilega er myndin mjög vel gerð. Kannski ekki mest frumleg í þessu þema en dettur þó ekki í neina klisju. Ef ég á að setja út á eitthvað myndi það vera skurðurinn við nefið. Hefði kannski líka prufað eitthvað annað í glasið, appelsínugulur er kannski full líkur húðlitnum.
Kveðja, Halli